Fréttir

Vortónleikar Tónlistarskóla Langanesbyggðar

Laugardaginn 9.maí lýkur Tónlistarskólinn vetrarstarfi sínu með glæsilegum tónleikum í Þórsveri. Tónleikarnir hefjast klukkan 14:00 og eru þeir öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Að tónleikum loknum geta gestir keypt sér veitingar af kaffihlaðborði og rennur andvirði sölunnar í sjóð til þess að kaupa píanó fyrir tónlistarskólann. Við hvetjum alla til þess að mæta og kynnast því góða starfi sem unnið er á meðal barna og unglinga í Tónlistarskólanum okkar. Verð fyrir veitingarnar verður kynnt síðar.
Lesa meira

Hyggur barnið þitt á tónlistarnám næsta vetur?

Þá er runninn upp tíminn til þess að skrá það í Tónlistarskóla Langanesbyggðar. Vinsamlegast nýtir ykkur eyðblöð sem má finna hér á þessari slóð: http://grunnskolinn.com/tonlistarskoli-thorshafnar/umsokn-um-tonlistarnam/ ATH.
Lesa meira

1. Foreldrakönnun Skólapúlsins febrúar 2015

Niðurstöður úr líðana og samskipta hlutanum: Líðan og einelti Í könnun Skólapúlsins voru foreldrar spurðir út hvernig þeir teldu að barni sínu liði í skólanum.
Lesa meira

Tilkynning um einelti - eyðublað

Tilkynning_eyðublað
Lesa meira

Gott er að fá gesti

Á föstudaginn var gestkvæmt hér hjá okkur í skólanum en þá komu kennarar frá Hrísey í heimsókn sem og starfsfólk Grunnskólans á Borgarfirði eystri. Það er ætíð sérlega ánægjulegt að fá gesti og við hverja komu lærum við eitthvað nýtt, því glöggt er gests augað.
Lesa meira

Samlokusala á fimmtudaginn

Nú nálgast mánaðarmót og það þýðir bara eitt, ja eða tvennt! Samlokusölu 10.bekkinga sem er þeirra fjáröflun og sparinesti. Hvernig væri nú að útbúa sérstaklega girnilega samloku eða taka með sér ávaxta og berjakokteil til að narta í með samloku þeirra í 10.
Lesa meira

HIV Ísland með fræðslu á Þórshöfn

Í dag fengu nemendur í 9.og 10.bekk fræðslu um HIV veiruna en þá fræðslu veitir HIV Ísland annað hvert ár, um allt land. Markmið og tilgangur félagsins er að auka þekkingu og skilning almennings á hiv og alnæmi og styðja hiv smitaða, sjúka og aðstandendur þeirra. Þessi megin markmið hafa ekkert breyst á þeim 25 árum sem félagið hefur starfað enda þörfin fyrir stöðuga fræðslu til almennings mikil, þrátt fyrir gríðarlega miklar og jákvæðar framfarir í meðferð og þekkingu manna á hiv og alnæmi síðustu árin. Á vinnuplöggum um stefnu og framtíðarsýn Hiv Ísland fyrir árið 2014 er unnið út frá eftirfarandi einkunarorðum.
Lesa meira

Háskólalestin nálgast Þórshöfn

Í dag fengum við góða gesti til okkar frá Háskólalestinni og Háskóla unga fólksins.Tilgangur heimsóknarinnar var að kanna aðstæður fyrir stóru dagana 22.
Lesa meira

Góður styrkur úr Sprotasjóði

Grunnskólinn á Þórshöfn hefur hlotið góðan styrk úr Sprotastjóði í þróunarverkefni sem hefst næsta haust við skólann og ber heitið: Lýðræði, þátttaka og hlutdeild allra í skólastarfi Grunnskólans á Þórshöfn. Markmið verkefnisins er að skólastarfið endurspegli það fjölmenningarlega samfélag sem skólinn á rætur sínar í. Við viljum gera menningu allra nemenda okkar sýnilega og námskrá skólans taki mið af henni og hún sé hluti af starfsháttum okkar og hluti af öllu  foreldrasamstarfi.
Lesa meira

Góða helgi

Sá sem kennir börnum, lærir meira en þau.
Lesa meira