Skólaþjónusta

Hlutverk skólaþjónustunnar er að veita ráðgjöf samkvæmt lögum um leik- og grunnskóla.

Sími hjá félags- og skólaþjónustu Norðurþings: 464-6100

 

Lög um grunnskóla nr.91/2008
Lög um leikskóla nr. 90/2008

Megin viðfangsefni þjónustunnar er að styrkja skóla og starfsemi þeirra með skimunum, greiningum, ráðgjöf og eftirfylgni.

Meðal verkefna skólaþjónustunnar er þjónusta vegna:

  • almennra námsörðugleika
  • lestrar- og stærðfræðiörðugleika
  • félags- og tilfinningalegra örðugleika
  • skólagöngu fatlaðra
  • vanda sem tengist einstökum nemendum eða bekkjardeildum
  • fræðslu við foreldra og starfsmenn skóla
  • mál- og tal örðugleika
 

Auk þess sinnir  Sonja Magnúsdóttir greiningum vegna tal- og málörðugleika. 

Ýmis fræðsla og heilræði