Mötuneytið

Mötuneytið er undir stjórn Karenar Rutar Konráðsdóttur lyngholt@lyngholt.is

 Matseðill fyrir mars er hér

Almennar upplýsingar:

- Áhersla á grænmeti með öllum mat

- Fiskur tvisvar í viku

- Súpa, grautur eða önnur létt máltíð einu sinni í viku

- Brauð með mat einu sinni eða tvisvar í viku

- Vatn með öllum mat, stöku sinnum djús

- Börnin eru hvött til að prófa mat sem þau hafa ekki smakkað áður

- Börnin hvött til skammta sér mátulega, fá sér frekar aftur svo ekki þurfi að henda miklum mat

- Í skólanum er "hugmyndabanki" þar sem börn geta komið ábendingum og hugmyndum á framfæri

- Hafi barn óþol eða ofnæmi fyrir ákveðnum fæðutegundum skal það tilkynnast til matráðs í upphafi skólaárs

- Matseðill er gefinn út um hver mánaðarmót og er aðgengilegur á heimasíðu grunnskólans

- Matráður póstar reglulega myndum af máltíðum á facebook síðu mötuneytisins til upplýsinga fyrir foreldra

 

Umgengni:

- Nemendur og starfsfólk fer úr útiskóm í andyri Þórsvers

- Leggjum áherslu á kurteisi og að nemendur gangi í matsalnum (hlaupi ekki)

Annað slagið er sett upp umbunarkerfi þar sem nemendur vinna sér inn broskarl eða fýlukarl og veltur það á hvernig umgengni er í matsal þann mánuðinn. Náist ákveðinn fjöldi broskarla fá nemendur að kjósa um eftirrétt í lok mánaðar. Undantekningalaust (hingað til) hefur tekist að ná takmarkinu :)

 

Gjald:

Til þess að fá máltíðir felldar niður vegna leyfa, þarf að láta matráð vita með 3ja daga fyrirvara og aðeins eru felldar niður máltíðir ef fjarvera er 3 dagar eða lengur.

Nokkur hefur borið á að matráður sé látinn vita í lok mánaðar ef nemandi hefur verið í leyfi en í þeim tilvikum eru máltíðirnar ekki felldar niður.

Gjaldskrá má finna á heimasíðu Langanesbyggðar.