Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir sérkennara. Lykilorð okkar eru vinsemd, virðing, vellíðan og virkni og þessi gildi leggjum við rækt við og leitumst við að uppfylla. Starfsfólk skólans hefur sinnt fjölbreyttu þróunarstarfi á liðnum árum og leggur áherslu á virkni og hlutdeild allra í skólabragnum. Áherslan er í skólastarfinu er á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, eflingu læsis, félagsfærni (ART) og samvinnu alls skólasamfélagsins, jafnt nemenda sem fullorðinna. Við óskum eftir sérkennara sem tilbúinn er til þess að vinna með í kennarateymum og sinna fjölbreyttum verkefnum sem lúta að uppbyggingu sérkennslu við skólann og þróun hennar eftir hugmyndafræði skóla án aðgreiningar. Viðkomandi skal hafa kennsluréttindi í grunnskóla og lokið námi í sérkennslufræðum. Laun fara eftir kjarasamningi KÍ og sveitarfélaganna. Umsóknarfrestur er til 20. júní 2016 og skulu umsóknir sendar rafrænt til skólastjóra; ingveldur@thorshafnarskoli. Frekari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 8526264 eða í tölvupósti.
| 
 Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími skólastjóra 468-1164  | 
 
  | 
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is