Við auglýsum eftir stuðningsfulltrúa í 80 % starf

Við auglýsum eftir stuðningsfulltrúa í 80 % starf við Grunnskólann á Þórshöfn frá 4.janúar til 28.maí 2021.

Stuðningsfulltrúi

  • tekur virkan þátt í þróun og uppbyggingu á stefnu og sýn skólans.
  • aðstoðar nemendur við athafnir daglegs lífs og til virkrar þátttöku í skólastarfi
  • miðlar þekkingu og stuðlar að jákvæðri félagslegri mótun
  • sýnir virkni í útfærslu og eftirfylgni í öllu skólastarfinu
  • fer út á frímínútnavakt eftir frekara skipulagi
  • starfar undir stjórn kennara í námsaðstæðum þeirra nemenda sem hann sinnir hverju sinni.
  • sinnir öðrum þeim störfum er skólastjóri, deildarstjóri sérkennslu eða umsjónarkennari kann að fela viðkomandi

Menntun

Framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

Reynsla

Reynsla af vinnu með börn er æskileg.

Hæfni

Lipurð í samstarfi, þolinmæði, jákvæðni, sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum. Stundvísi og áreiðanleiki. Metnaður og áhugi á skólaþróun og nýungum í skólastarfi.

Umsóknarfrestur er til og með 21.desember 2020

Umsóknir skal senda skólastjóra á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is

Hilma Steinarsdóttir

Sími 468-1164 eða 852-0412