Vetrarfrí og starfsdagur

Við óskum öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs vetrarfrís og vonum að allir njóti góðra og notalegra stunda saman.
 
Á miðvikudaginn verður starfsdagur hjá starfsfólki skólans. Dagurinn verður helgaður vinnu við skólanámskrá í samræmi við nýja menntastefnu Langanesbyggðar.
 
Að vetrarfríi loknu taka við þemadagar þar sem nemendur og starfsfólk leggja hönd á plóg við undirbúning árshátíðar skólans en árshátíðin verður haldin 19. nóvember.
 
Njótið vetrarfrísins!