Þegar við gerum mistök, hvað er þá til ráða?

V - A - L er eitt af verkfærum jákvæðs aga og er markmiðið að kenna nemendum að nota það til að losna við sektarkennd, skömm og ásakanir eftir að hafa gert mistök. 

Að geta beðist afsökunar á mistökum og fundið út í sameiningu hvernig hægt er að læra af þeim bætir oft samskipti og þau geta orðið betri heldur en þau voru áður en mistökin voru gerð. 

V - Viðurkenning - „Ég gerði mistök!"

A - Afsökunarbeiðni - „Ég biðst afsökunar."

L - Lausn - „Getum við í sameiningu fundið lausn á þessu?"