Það er alltaf bæði ánægjulegt og gaman að heimsækja Öxarfjarðarskóla en þangað fóru nemendur í 4.–7. bekk í dag. Þar var tekið vel á móti okkur og hófst heimsóknin á ljúffengum morgunverði. Að honum loknum tefldu nemendur skólanna sín á milli og voru allir til fyrirmyndar, bæði í framkomu og þátttöku. Þar sem veðrið lék við okkur enduðum við síðan daginn úti í skemmtilegum boltaleikjum.








|
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Frístund 647-0712Yngsta stig 647-0713Miðstig 647-0714Elsta stig 647-0715Skólastjóri 468-1164 og 852-0412
|
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
eða
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is