Í skólanum stendur yfir samfelld syrpa af þemavikum þar sem ólík viðfangsefni eru í forgrunni skólastarfsins. Þetta skipulag skiptist í þrjá meginhluta sem hver um sig tekur fyrir mikilvæga þætti í námi og alhliða þroska nemenda.
Í heilsuviku var áhersla lögð á hreyfingu og næringu. Dagskráin á mið- og elsta stigi hófst á því á hverjum morgni að nemendur gengu eina enska mílu í nærumhverfi skólans. Að göngu lokinni beið hafragrautur og ávextir eftir þeim.
Eftir heilsuviku tók við bókavika. Þar var lögð megináhersla á að skapa jákvæða lestrarupplifun meðal allra nemenda. Unnið var með fjölbreyttar bækur til að efla lestrarkunnáttu og almennan áhuga á bókmenntum.
Þessari syrpu lýkur á stærðfræðiviku sem hefst á mánudag. Þar fá nemendur tækifæri til að dýpka skilning sinn á faginu í gegnum verkefni sem reyna á rökrétta hugsun og styrkja stærðfræðilega færni.
Rúsínur í grautinn og lummur úr afgangshafragraut!


"Just dance"


|
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Frístund 647-0712Yngsta stig 647-0713Miðstig 647-0714Elsta stig 647-0715Skólastjóri 468-1164 og 852-0412
|
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
eða
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is