Starf stuðningsfulltrúa laust til umsóknar

Við auglýsum eftir stuðningsfulltrúa í hlutastarf við Grunnskólann á Þórshöfn frá 15.ágúst 2023 til 31.maí 2024.

Stuðningsfulltrúi

  • tekur virkan þátt í þróun og uppbyggingu á stefnu og sýn skólans.
  • aðstoðar nemendur við athafnir daglegs lífs og til virkrar þátttöku í skólastarfi
  • miðlar þekkingu og stuðlar að jákvæðri félagslegri mótun
  • sýnir virkni í útfærslu og eftirfylgni í öllu skólastarfinu
  • er á frímínútnavakt eftir frekara skipulagi
  • starfar undir stjórn kennara í námsaðstæðum þeirra nemenda sem hann sinnir hverju sinni.
  • sinnir öðrum þeim störfum er skólastjóri, deildarstjóri stoðkennslu eða umsjónarkennari kann að fela viðkomandi

 

Menntun

Framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

 

Reynsla

Reynsla af vinnu með börn er æskileg.

 

Hæfni

Lipurð í samstarfi, þolinmæði, jákvæðni, sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum. Stundvísi og áreiðanleiki. Metnaður og áhugi á skólaþróun og nýungum í skólastarfi. Góð íslenskukunnátta mikilvæg.

Umsóknir skal senda á netfangið soley@thorshafnarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2023 og með umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.