Skemmtileg og fræðandi ferð í tilefni dags íslenskrar náttúru

Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru skellti elsta stig skólans sér í fræðandi vettvangsferð til Húsavíkur og Tjörness. Áætlun dagsins er þéttskipuð og áhugaverð. Á Húsavík heimsóttu nemendur Hvalasafnið og Sjóminjasafnið.

Leiðin lá svo á Tjörnes þar sem hópurinn fór niður í Tungulendingu. Þar skoðuðu nemendur Tjörneslögin en það eru einstök jarðlög sem geyma miklar upplýsingar um loftslagssögu og steingervinga. Einnig fór hópurinn að Skjálftavatni og í Sultir.

Þessi frábæra ferð dýpkaði skilning nemenda á náttúrunni og sögu landsins.