Nýtt skólaár er að hefjast í skólanum okkar

Skólasetning fór fram í gær en þar fóru kennarar yfir helstu atriði, skipulag og fleira sem snýr að komandi vetri. Fólki gafst jafnframt kostur á að skoða nýuppgert húsnæði skólans og foreldrafélagið bauð upp á grillaðar pylsur í veðurblíðunni.

Starfsdagarnir fóru í að koma sér fyrir og undirbúa starfið. Jafnframt er undirbúningur í gangi við að koma tónlistarskólanum fyrir og gera allt klárt fyrir starfsemi hans. Tónlistarkennarar munu hitta nemendur á þriðjudag og fara yfir skipulag námsins fram undan.