Netskákmót fyrir nemendur á Norðurlandi eystra

Á fimmtudögum kl. 16.30 stendur Skáksamband Íslands fyrir netskákmótum fyrir nemendur á Norðurlandi eystra. Teflt er á chess.com og stendur hvert mót í klukkustund.
 
Mótin eru þannig að eftir hverja skák byrjar alltaf ný skák um leið, gegn nýjum andstæðingi. Einungis þarf að klikka á "next match" þegar skákin er búin.
 
Til að taka þátt þarf að fara í gegnum fáein einföld skref. Best er að klára skref 1 og 2 sem fyrst.
 
1. Búa til aðgang á chess.com (ef aðgangur er ekki til staðar nú þegar). Aðgangur er ókeypis og einfalt að búa til aðgang: https://www.chess.com/register
 
2. Gerast meðlimur í hópnum "Skólaskák Norðurland eystra" : https://www.chess.com/club/skolaskak-nordurland-eystra
 
3. Skrá sig á mótin sem er hægt að gera frá 60 mínútum áður en þau hefjast. Hér er tengill á fyrsta mótið: https://www.chess.com/live#r=176167 Það þarf að ýta á "join" og svo bara bíða eftir að fyrsta skák byrjar klukkan nákvæmlega 16:30
 
Til að tefla í mótinu þarf að notast við fartölvu eða borðtölvu. Chess.com appið virkar ekki í mótum. 
 
Mótin verða alla fimmtudaga næstu vikurnar og hefjast alltaf klukkan 16:30. Að ofan er tengill á fyrsta mótið en til að vera með í mótum á næstunni þarf einfaldlega að mæta á chess.com frá 15:30 á fimmtudögum og skrá sig í mótið í gegnum hópinn "Skólaskák Norðurland eystra".
 

Ef einhverjar spurningar eru er hægt að senda á netfangið stefan.steingrimur.bergsson@rvkskolar.is eða hringja í síma 863-7562, en það er Stefán Bergsson æskulýðsfulltrúi Skáksambands Íslands sem heldur utan um mótin.