Í byrjun maí kom upp grunur um myglu í kennslustofu 8. og 9. bekkjar, Eldjárnstöðum. Stofunni var tafarlaust lokað og hefur ekki verið notuð síðan.
Í kjölfarið voru tekin 19 sýni úr veggjum og gólfum úr eftirfarandi rýmum í suðurálmu skólans: úr bekkjastofu 8. og 9. bekkjar, bekkjarstofu 10. bekkjar (Brimnes), skiptistofu (Staðarsel), salernum og gangi. Niðurstöður sýndu að mygla greindist í 12 sýnum, öllum úr gólfum. Mygla fannst í öllum prófuðum rýmum, sem þýðir að allur austurhluti suðurálmu er mengaður.
Niðurstöðurnar bárust í byrjun vikunnar og var málið tekið fyrir á byggðarráðsfundi í dag. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar verður líklega að loka allri suðurálmunni og finna bráðabirgðahúsnæði fyrir næsta skólaár. Þetta hefur víðtæk áhrif þar sem í álmunni eru nú bekkjastofur 4.-10. bekkjar, tvö salerni, vinnuaðstaða kennara og kaffistofa.
Þetta er mikið áfall en við munum einbeita okkur að lausnum til að tryggja óskert skólastarf þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður. Upplýsingar um framhaldið verða kynntar þegar þær liggja fyrir.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is