Lestrarhátíð 7.bekkjar

 

Lestrarhátíð 7. bekkjar fór fram í maí en hún hefur verið fastur liður í skólastarfinu um nokkurra ára skeið. Markmið hátíðarinnar er að efla áhuga nemenda á ljóðum og íslenskum bókmenntum ásamt því að þjálfa kynningar- og tjáningarfærni.

Í verkefninu valdi hver nemandi sér ljóðskáld og kynnti sér líf þess og verk. Að því loknu útbjuggu nemendur bók í Book Creator þar sem þeir söfnuðu saman upplýsingum um höfundinn og verk hans.

Á lestrarhátíðinni buðu nemendur foreldrum sínum og nemendum í 6. bekk að koma og njóta afraksturs vinnunnar. Þar kynntu þeir valið ljóðskáld og fluttu ljóð eftir það fyrir gesti sína.

Að loknum glæsilegum flutningi var boðið upp á veitingar sem nemendur höfðu sjálfir útbúið. 

Við þökkum öllum gestum fyrir komuna og hlökkum til að halda þessari skemmtilegu hefð áfram á næstu árum.