Við óskum eftir áhugasömum íþróttakennara sem er skapandi í starfi og hefur mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Leyfisbréf kennara
· Færni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
· Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
· Góð íslenskukunnátta
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín.
Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2023.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, grunnskolinn.com
Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2023 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is