Jólastöðvar

Framundan eru hinar árlegu jólastöðvar en á morgun og hinn (12. og 13. desember) verður skólahaldið brotið upp með svolítið jólalegu ívafi. Miðvikudagurinn er eins og venjulega frá kl. 8:10-14:00 þar sem nemendur vinna á þremur jólastöðvum. Á fimmtudaginn fara nemendur á hinar þrjár stöðvarnar og svo er opið hús eins og venjulega fyrir foreldra, afa, ömmur, frændur og frænkur milli kl. 14:00-16:00 og er það tvöfaldur dagur. Kv. Starfsfólk Grunnskólans.