GÞ auglýsir eftir kennurum fyrir skólaveturinn 2023-2024

Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.

Menntunar- og hæfniskröfur:

·       Leyfisbréf kennara

·       Færni í mannlegum samskiptum

·       Sjálfstæð og öguð vinnubrögð

·       Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

·       Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu

·       Góð íslenskukunnátta

Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín.

Okkur vantar kennara í íþróttum, list- og verkgreinum, heimilisfræði og raungreinum, einnig vantar umsjónarkennara í samkennslu hjá 1. og 2.bekk og laus er til umsóknar 50% staða í stoðkennslu.

Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2023.

 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, grunnskolinn.com

Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is

Hilma Steinarsdóttir
Skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn
Sími 468-1164
Netfang hilma@thorshafnarskoli.is
 

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2023 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.