Grunnskólinn óskar eftir kennurum

UM STARFIÐ

Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir kennurum til starfa við skólann næsta skólaár. Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi. Við leitum að fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem á það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun. Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín. Okkur vantar, umsjónarkennara, stærðfræðikennara, kennara í list og verkgreinar og íþróttakennara. Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áframhaldandi spennandi skólaþróun. Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áframhaldandi spennandi skólaþróun. Á Þórshöfn er blómstrandi mannlíf, mikil náttúrufegurð, öflugt íþrótta- og félagsstarf fyrir alla þá sem vilja verða hluti af fjölbreyttri mannlífsflóru norðlensks sjávarþorps. Umsóknarfrestur er til 30. apríl og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið asdis@thorshafnarskoli.is. Við hlökkum til að heyra frá þér! Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri Ásdís Hr. Viðarsdóttir í síma 4681164 eða 8520412