Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir kennurum

Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
  • Góð íslenskukunnátta

 

Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín.

Okkur vantar kennara í íþróttum, list- og verkgreinum, heimilisfræði og raungreinum.  

 

Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2024.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, grunnskolinn.com

Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is 

 

Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2024 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

 

Hilma Steinarsdóttir
Skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn
Sími 468-1164
Netfang hilma@thorshafnarskoli.is