Við fórum með 8.-10. bekk í vettvangsferð um Kelduhverfi, Tjörnes og Húsavík í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Stoppuðum fyrst við Skjálftavatn í Kelduhverfi sem myndaðist við jarðhræringar tengdum Kröflu á árunum 1974-1976. Síðan var haldið að Tungulendingu á Tjörnesi þar sem Aðalsteinn og Hafrún fræddu okkur um Tjörneslögin sem sjást svo skýrt þar. Þaðan var farið á Húsavík þar sem bæði var komið við á Hvalasafninu og í Safnahúsinu. Virkilega fræðandi og skemmtilegur dagur.
|
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Frístund 647-0712Yngsta stig 647-0713Miðstig 647-0714Elsta stig 647-0715Skólastjóri 468-1164 og 852-0412
|
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
eða
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is