Líf og fjör einkenndi skólastarfið á dögunum þegar okkur bauðst enn og aftur að taka þátt í BRAS, barna- og menningarhátíð Austurlands. Yfirskrift hátíðarinnar í ár var Undur og Furða.
Þriðjudaginn 22. september fóru nemendur í 5. og 6. bekk í eftirminnilega ferð á sirkusnámskeið með Hringleik, sem fór fram í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Rúta á vegum BRAS sótti hópinn og ferðuðust nemendur okkar saman með nemendum úr Vopnafjarðarskóla og Brúarásskóla. Námskeiðið stóð yfir í tvær og hálfa klukkustund þar sem krakkarnir spreyttu sig á listrænum sirkuslistum.
Gleðinni var þó ekki lokið því fimmtudaginn 24. september sótti listakonan Hildigunnur Birgisdóttir okkur heim. Hún bauð upp á myndlistanámskeið á vegum Skaftfells þar sem nemendur í 1. til 4. bekk voru leiddir inn í töfraheim lita og skrauts. Þar fengu ímyndunaraflið og sköpunargleðin að njóta sín til fulls hjá áhugasömum krökkum.
Við erum afar þakklát og þökkum fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessum skemmtilegu og lærdómsríku viðburðum.






|
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Frístund 647-0712Yngsta stig 647-0713Miðstig 647-0714Elsta stig 647-0715Skólastjóri 468-1164 og 852-0412
|
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
eða
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is