Nemendur í 5. og 6. bekk hafa nú gengið í hús hér á Þórshöfn og safnað fyrir börn í Afríku og Asíu en söfnunin fer fram á landsvísu og um 90 grunnskólar taka þátt í henni. Söfnunarféð rennur til skólastarfs þar sem sérstaklega þarf að efla það. Hér á Þórshöfn söfnuðust í bauka krakkanna 47.881 króna og er þá ótalið það sem fólk lagði inn í gegnum sinn heimabanka. Hér má sjá myndir af hressum krökkum skila af sér, og að lokinni bankaferðinni var skotist niður í fjöru og notið þeirrar veðurblíðu sem hér er.
|
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Frístund 647-0712Yngsta stig 647-0713Miðstig 647-0714Elsta stig 647-0715Skólastjóri 468-1164 og 852-0412
|
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
eða
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is