Auglýsum eftir kennurum

Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni
  • Stundvísi

 

Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín. Okkur vantar, umsjónarkennara og faggreinakennara, þar á meðal kennara í íþróttum og list og verkgreinum. Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2020.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, grunnskolinn.com

Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is 

 Umsóknarfrestur er til og með 8.maí 2020 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Hilma Steinarsdóttir

Skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn

Sími 468-1164 eða 852-0412

Netfang hilma@thorshafnarskoli.is