112 dagurinn

Helstu viðbragðsaðilar á staðnum komu og kynntu starf sitt fyrir nemendum í tilefni af 112 deginum.

Fulltrúar viðbragðsaðila sögðu frá mikilvægu hlutverki sínu, sýndu ýmis tæki og búnað sem þeir nota í starfi sínu og svöruðu spurningum nemenda.

Heimsóknin var bæði fróðleg og skemmtileg og vakti nemendur til umhugsunar um öryggi og mikilvægi þess að vita hvernig bregðast á við þegar eitthvað bjátar á.