Á myndinni hér fyrir neðan sjá samanburð Grunnskólans á Þórshöfn á milli ára, en þessi mynd sýnir að foreldrar telja að líðan barna sinna í skólanum sé almennt að batna. Græna línan sýnir Grunnskólann á Þórshöfn.
Einn mikilvægur þáttur í velferð og líðan barna er tíðni eineltis í skólum, en því miður mælist það nú meira en á síðustu tveimur árum, þegar litið er til svara foreldra. Mikilvægt er með öllum mögulegum ráðum að ráðast að rótum þess mikla vanda sem einelti er, og við sem samfélag verðum að kveða þann draug niður! Við líðum ekki einelti, hvergi. Mikil aukning er á milli ára í einelti að mati foreldra og mælist það nokkuð jafnt hjá öllum árgöngum, en drengir eru umtalsvert fleiri í hópi þolenda en stúlkur. Foreldrar eru almennt séð ekki ánægðir með úrvinnslu skólans á eineltismálum og er það þáttur sem starfsmenn Grunnskólans á Þórshöfn þurfa að bregðast við.
Við hvetjum foreldra til þess að tilkynna allan grun um einelti svo við getum brugðist við og koma einnig til okkar öllum þeim ábendingum sem þeir telja að geti orðið okkur til gagns í baráttunni. Það er einnig mikilvægt að við bregðumst öll við alls staðar! Allt einelti þarf að tilkynna svo hægt sé að virkja eineltisáætlun skólans. Öfugt við myndina hér á undan – þá viljum við vera fyrir neðan strikið – og þangað stefnum við! Einelti er ólíðandi!
Endilega kynnið ykkur efni frá málþingi sem finna má á vef Náum áttum. Félagsskapurinn hélt málþing um einelti, þar sem Vanda Sigurgeirssdóttir, Páll Óskar og margir fleiri fluttu afar áhugaverð innlegg. Gefum okkur tíma – fræðumst og lærum hvernig við sem samfélag getum tekið á þessu meini og helst útrýmt því.
http://www.naumattum.is/page/n8_forsida&detail=14245
Ferli eineltismála í Grunnskólanum á Þórshöfn er þetta:
Tilkynning um einelti_eyðublað |
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 647-0715 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is