Skólar á grænni grein vinna að menntun til sjálfbærni og hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið, landvernd.is

UM SKÓLA Á GRÆNNI GREIN

Skólar á öllum skólastigum taka þátt í grænfánaverkefninu. Skólar á grænni grein vinna að menntun til sjálfbærni og hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið, landvernd.is

Á Íslandi eru um 200 skólar á öllum skólastigum í grænfánaverkefninu.

Skólar á grænni grein (Eco-schools) er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi. Grænfáninn hefur verið á Íslandi frá árinu 2001. Verkefnið er stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education.

Skólar á grænni grein styðja við umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og almennt umhverfisstarf í skólum á öllum skólastigum.

Markmið verkefnisins eru að;

  • bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
  • efla samfélagskennd innan skólans.
  • auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
  • styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
  • veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.

Grænfáninn sjálfur er viðurkenning eða verðlaun til skóla sem vinna að sjálfbærnimenntun á einhvern hátt. Hver skóli vinnur eftir skrefunum sjö, setur sér markmið og virkir nemendur.

Uppruni verkefnisins
Samtökin stofnuðu verkefnið árið 1992 til að svara ákalli og ályktun um þörf á slíku verkefni sem samþykkt var á heimsfundinum í Ríó árið 1992. Eitt af markmiðum Landverndar er að auka umhverfismennt í landinu og urðu samtökin aðilar að samtökunum Foundation for Environmental Education árið 2000 og hleyptu verkefninu Skólar á grænni grein af stokkunum ári síðar. Fyrstu skólarnir skráðu sig í verkefnið árið 2001 og eru nú um 200 skólar á öllum skólastigum víðsvegar um landið virkir þátttakendur í verkefninu. Grænfánaskóla má finna í 70 löndum víðsvegar um heiminn.

ÞÁTTTÖKUSKÓLAR

Fyrstu Grænfánaskólarnir á Íslandi
Fyrstu skólarnir á Íslandi voru grunnskólarnir Andakílsskóli á HvanneyriFossvogsskóli og Selaásskóli. Stuttu síðar hófu leikskólar þátttöku og tók leikskólinn Norðurberg í Hafnarfirði af skarið. Í dag eru skólar af öllum skólastigum þátttakendur í verkefninu. 

Hvað gera Skólar á grænni grein?
Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um heim sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. 

STARFSFÓLK

Ósk Kristinsdóttir er sérfræðingur hjá Skólum á grænni grein. Hún er starfsmaður Landverndar.

Ósk Kristinsdóttir

Ósk Kristinsdóttir er sérfræðingur Skóla á grænni grein.
Nánar →
Sigurlaug Arnardóttir er sérfræðingur hjá Skólum á grænni grein, landvernd.is

Sigurlaug Arnardóttir

Sigurlaug Arnardóttir er verkefnastjóri menntaverkefna, Grænfána og Umhverfisfréttafólks
Nánar →
Rannveig Magnúsdóttir er sérfræðingur hjá Landvernd, landvernd.is

Rannveig Magnúsdóttir

Rannveig er sérfræðingur hjá Landvernd og Skólum á grænni grein. Hennar sérsvið er málefni sem tengjast vistheimt, lífbreytileika, matarsóun, plasti og loftslagsmálum Rannveig er líffræðingur að ...
Nánar →
Guðrún Schmidt er sérfræðingur Skóla á grænni grein, landvernd.is

Guðrún Schmidt

Guðrún Schmidt er sérfræðingur Skóla á grænni grein. Hún hefur aðsetur á Egilsstöðum.
Nánar →

STÝRIHÓPUR

Stýrihópur grænfánans

Stýrihópur grænfánans

Stýrihópur Skóla á grænni grein fundar alla jafna einu sinni á ári og hefur áhrif á stefnu og starf Skóla á grænni grein.
Nánar →

Önnur menntaverkefni Landverndar

Viltu gerast umhverfisfréttamaður? Taktu þátt í YRE verkefni Landverndar, landvernd.is

Umhverfisfréttafólk

Hafðu áhrif! Ungt umhverfisfréttafólk skapar ungmennum vettvang til þess að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt. Kynntu þér málið og ...
Vistheimt bætir landgæði, gróður, jarðveg og eykur líffræðilegra fjölbreytni og er mikilvæg aðgerð til þess að endurheimta illa farin vistkerfi. Vistheimt með skólum er verkefni Landverndar, landvernd.is

Vistheimt með skólum

Vistheimt með skólum Verkefnið var starfrækt á árunum 2013- 2023 og beindi sjónum nemenda að endurheimt vistkerfa (vistheimt) og mikilvægi þess fyrir gróður og jarðveg, ...

VIÐBURÐIR